<


Mig langar í Lomo myndavél, mig dreymir um Lomo myndavél, ég verð að eiga Lomo myndavél. Stelpur þið eruð yndislegar, L þú ert bestur og H ég er ekki búin að kaupa afmælis gjöf handa þér. Æi ég bara dýrka Four Tet og get ekki beðið She moves She svo geðsjúkt.

<


Bólgu háls, nefrennsli og svefnlausar nætur er mætt í hús veturinn nálgast og laufin sem falla koma inn um gluggann hjá mér og enda á gólfinu sem gerir það að verkum að ég hef ástæðu til að taka til í herberginu mínu. Guð má vita hvað helgin bíður upp á líklegast bara svefn og hósta. Rauður lakkrís kemur bráðlega með honum kemur salat sósur og burritos krydd já lífið er sko skemmtilegt þegar Kanada fólkið lætur sjá sig.

<


Mig vantar húfu, M vantar stærri tösku til að taka með sér til Dublin, P fer í veiðitúr með nýju töskuna sína og Bóbó er líklegast í bútum inn í bílskúr í Garðabæ. Það jafnast ekkert á við oktober airwaves, sparnaður og fiskur á hverjum mánudegi. Ég er óskipulögð, þreytt á því að sofna seint en ánægð að vakna í kulda á morgnanna.

<


Oh boj hvað helgin var góð rauðvín, ikea, kókó puffsss og fullt af nýjum hlutum. Við skemmtum okkur á svo fallegan hátt t.d. er fiskurinn mættur á bjargarstíg þar er líka hálf fullur ískápur og ný sæng. Bóbóóó - RL474 var seldur um helgina ég er ekki að fúnkera án hans sakna hans mest.....

<


Dagarnir eru stöðugir, ég hef haft óþarfa áhyggjur og er að pæla í að fjárfesta í fiskum.

<


Mig langar svo að vita hvort þið vissuð að ég vissi að mér finnst lífið rokka! Og að lagið i just called to say i love you er eitt að mínum uppáhalds lögum. Vildi líka minna ykkur á að maginn minn gefur frá sér undarleg hljóð svona seint á nóttu og að ég er orðin þreytt á öllum acoustic lögunum í tölvunni minni. Ég sef illa á hans, hef of lítið samband við ákveðna aðila og mætti borða meira grænmeti. Svo hef ég komist að því að mér finnst Norah Jones ofmetin og strákarnir í 70 mínutum leiðinlegir, ég borða ekki súsí en hef mikinn áhuga á að læra að elda í framtíðinni. Takk fyrir góða nótt

<


Sofnum við ocean sounds flest kvöld, horfum á lélegar myndir og erum háð simpsons. Damien Rice stóðst allar væntingar, punktur. Helgin bíður upp á lærdóm, vinnu, lærdóm og vinnu sem er hressandi. P gaf mér gamla myndavél þannig núna á ég þessa gömlu myndavél en ekkert til að mynda er það ekki frekar súrt! Bíbí stendur sig vel, frændinn er niðurdreginn & dapur alla daga lifir á morgunkorni, frón kexi og léttmjólk honum langar að fá vinnu sem verkamaður og sofna þreyttur á kvöldin en eins og staðan er núna er það ekki mögulegt.

<


H gaf mér karlmanns nærbuxur úr H&M, L gaf mér miða á Blonde Redhead, M gaf mér súkkulaðiköku með alvöru rjóma. Laufin eru farin að falla ég elska haustið "stundum", fólk verður gjafmilt og ég byrjað að nota trefil mjög spennó.